Teikningaprentari
Fab Lab Smiðjan býr yfir teikningaprentaranum Canon imagePROGRAF TM-255 sem getur prentað út myndir, skjöl, veggspjöld o.fl. í allt upp að A1 stærð (610 mm að breidd). Prentarinn notast við CMYK inkjet litaprentun og getur prentað í allt upp að 600 DPI upplausn.
Stafræn Fræsivél
Stafræn fræsivél, betur þekkt sem CnC fræsari, eru fjölþátta og flóknar vélar sem færa spindlu með áföstum bor um á 3 - 5 ásum og bora þannig í efnið. Hægt er að segja að stafrænn fræsari virki eiginlega öfugt við þrívíddaprentara. En í stað þess að hluturinn byggist upp lag fyrir lag á verkfletinum, þá sér fræsarinn um að skera hann út úr fyrirliggjandi efni lag fyrir lag.
Stafræn Útsaumsvél
Stafræn útsaumavél virkar eins og hefðbundin saumavél nema það að hún er þeim kostum gædd að geta sjálfvirkt saumað myndir, texta, mynstur, o.þ.h.
Vacuum Mótun
Í smiðjunni erum við með þægilega og einfalda græju (Mayku Formbox) sem getur búið til mót af nær hverju sem er. Hluturinn sem á að gera mót af er settur í vélina, ryksuga tengd við og eftir það er plast brætt fyrir ofan hlutinn. Þegar plastið er við rétt hitastig þá er því ýtt yfir hlutinn og síðan sér ryksugan um að soga plastið að hlutnum.
Vínylskeri
Vínylskeri er tölvustýrður hnífur sem getur skorið í hversskyns filmur af öllum litum. Stundum er vínylskera líkt við prentara nema í stað þess að sprauta bleki þá er hníf stungið niður og allt sem hægt er að gera með dúkahníf í filmur er hægt að gera í vínylskera bara á mun nákvæmari og fljótlegri hátt.
Geislaskeri
Geislaskeri er handhægt tæki sem er sífellt að verða vinsælla í framleiðsluiðnaði. Skerarnir beina sterkum ljósgeisla á einn lítinn punkt og ná þannig að skera (brenna) í gegnum efnið. Aukalega þá er geislaskerinn notaður til þess að brennimerkja í efni, svipað og hægt er að gera með brennipenna (rastera), nema miklu nákvæmara. Algengustu efni sem notuð eru í laserskeranum eru pappi, plexígler, gler, krossviður, leður og MDF. Hægt er þó að skera og rastera í fjölmörg efni, þ.á.m. málm.
Þrívíddaprentarar
Þrívíddaprentarar eru tölvustýrðar vélar sem að allar hafa það sameiginlegt að búa til hlut úr plasti með því að prenta hann úr lag fyrir lag. Algengustu tegundirnar af þrívíddaprenturum eru svokallaðir FDM prentarar sem prenta úr plastþráðum og SLA prentarar sem prenta úr prentvökva.

