SKÚRINN

Félagsskapurinn er mikilvægur.
‍ Gott er að koma í skúrinn, hitta karlana og spjalla.”

Jóhann Gunnarsson, 72 ára fyrrverandi starfsmaður í álveri

Hvað er SKÚRINN?

SKÚRINN er samfélagslegt verkefni sem er opið fyrir alla. Aðstaðan veitir fólki af báðum kynjum stað til að hittast, spjalla og vinna að ýmsum sjálfstæðum og sameiginlegum verkefnum sem þeir sjálfir ákveða.

Verkefnið stuðlar að því að veita öruggt og vingjarnlegt umhverfi þar sem þátttakendur geta unnið að sjálfstæðum verkefnum á sínum eigin hraða. Með því er stuðlað að bættri heilsu og vellíðan með stuðningi sköpunar, félagsskaps og kaffidrykkju.

Viðfangsefnin í Skúrnum eru mjög mismunandi, en oft er hægt að finna meðlimi sem vinna í trésmíði, málmsmíði, viðgerðum og endurbótum á smáhlutum, húsgögnum og vélum, rafeindavinnu, módelsmíði eða hvað annað sem huginum girnist. Skúrinn hefur upp að þessu laðað mikið af eldri karlmönnum að, en yngri karlmenn og konur hafa einnig sýnt starfsseminni mikinn áhuga. Hvert þó sem verkefnið er, þá er kjarni Skúrsins ekki aðstaðan sjálf, heldur tengslin og vinskapurinn milli meðlima hans.

Hvernig byrjaði þetta?

SKÚRINN í þeirri mynd sem hann er núna var formlega opnaður 4. desember 2025, en fyrir það var hópur af vöskum mönnum sem að unnu að því í nokkra mánuði að setja upp aðstöðuna, afla húsgagna, tækja og tóla, og byggja upp spennu meðal almennings fyrir tilkomandi aðstöðu.

Verkefnið SKÚRINN byggir á samfélagsverkefninu “Karlar í Skúrum” sem hægt er að finna víðsvegar um landið, en á uppruna sinn að rekja til Ástralíu árið 1999. Síðan þá hafa “Skúrar” spruttið upp víðsvegar í heiminum og eru þeir núna orðnir fleiri en 2.000 á heimsvísu. Þó þeir séu mismunandi milli landa og bæja þá hafa þeir þó allir það að markmiði að efla sköpunarkraft handverkafólks með samvinnu og félagsskap.

Afhverju SKÚRINN?

Rannsóknir hafa sýnt í fjölda ára hversu neikvæð áhrif einmanaleiki og einangrun getur haft á andlega og líkamlega heilsu einstaklinga. Samkvæmt könnunum reknum af fjölda líðheilsu góðgerðastofnana erlendis, þá hefur einmanaleiki aukist gífurlega á síðustu árum og þá sérstaklega á meðan og eftir Covid faraldurinn. Áhrif viðvarandi einmanaleika og einangrunar getur, að mati sérfræðinga, í sumum tilfellum verið jafn hættuleg og offita eða reykingar!

Skúrinn er tilkominn til að leysa úr þessu vandamáli með að bjóða upp á sameiginlega aðstöðu þar sem hægt er að deila þekkingu, vinna að verkefnum, spjalla, og hafa gaman með hóp af svipað þenkjandi einstaklingum. Þökk sé því þá dregur Skúrinn óbeint úr áhrifum einmanaleika og einangrunar með því að skapa sitt eigið samfélag innan starfsseminnar og félagsmanna.

Þriðjudaga & Fimmtudaga

13:00 - 17:00

Langar þig að vera með?

SKÚRINN er opinn alla þriðjudaga og fimmtudaga frá 13:00 - 17:00 fyrir félagsmenn. En öllum er þó velkomið að koma í heimsókn og kynnast starfsseminni og félagsmönnum. Mánaðarlegt félagsgjald er 2.000 kr og veitir það aðgang að öllum tækjum og tólum Skúrsins.

Síðasta fimmtudag í hverjum mánuði er vöfflukaffi í boði Skúrsins fyrir hvern þann sem á leið framhjá.