Ársskýrsla 2025
Yfir árið hefur Fab Lab Smiðja Vesturlands boðið upp á almenna opnunartíma, en á þessum opnunartímum gefst gestum og gangandi kostur á að nýta tækjabúnað og aðstöðu smiðjunnar án sérstaks gjalds. Mæting hélst frekar stöðug frá síðasta ári, en u.þ.b. 1.500 manns sóttu smiðjuna fyrri hluta árs. Rétt eins og á síðasta ári eru helstu notendur opna tímans aðilar frá endurhæfingarhúsinu Hver, en aukalega hefur haldist í ákveðinn „kjarnahóp“ frá síðasta ári sem reglulega mætir í opna tíma.
Ársskýrsla 2024
Í þessari ársskýrslu eru teknar saman upplýsingar um starfssemi Fab Lab Smiðju Vesturlands á starfsárinu 2024. Hér verður fjallað um helstu verkefni, viðburði, og kynningar sem hafa átt sér stað innan smiðjunnar, mætingarskráning tekin saman auk þess sem farið verður yfir rekstrarstöðu smiðjunnar fyrir árið 2024. Einnig mun vera farið yfir hvernig smiðjan hefur byggt upp starfssemi sína síðasta ár og hvernig hún hefur náð að festa sig meira í sess í samfélaginu á Akranesi.
Ársskýrsla 2023
Hér er hægt að sjá Ársskýrslu Fab Lab Smiðju Vesturlands árið 2023. Árið 2023 var annað heila starfsárið hjá Fab Lab Smiðju Vesturlands. Heimsóknarfjöldi í fasta tíma smiðjunnar var heldur dræmur um mitt ár og um haust, en fór aukandi síðustu tvo mánuði ársins í aðdraganda jólanna. Alls sóttu 4.219 manns smiðjuna yfir starfsárið en horfur eru á að sú tala fari ört hækkandi. Þá eru karlar örlítið duglegri að sækja smiðjuna en konur, en um 58% heimsókna voru karlmenn meðan að 42% þeirra voru konur.

