Þar sem hugmyndir

verða að veruleika

Vettvangur til Nýsköpunar

Fab Lab (Fabrication Laboratory) er smiðja með tækjum og tólum til að búa til nánast hvað sem er. Fab Lab smiðjur gefa ungum sem öldnum, einstaklingum og fyrirtækjum, tækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna og hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd með því að hanna, móta og framleiða hluti með aðstoð stafrænnar tækni.

Í smiðjunum er búnaður til þess að raungera hugmyndir með hjálp tölvustuddrar hönnunar og framleiðslutækni. Þar eru meðal annars tölvustýrðir laserskerar, vínylskerar, fræsivélar, þrívíddarskannar og þrívíddarprentarar ásamt búnaði til að vinna með sérfræðingum um allan heim sem hafa það að markmiði að deila þekkingu.

Nýsköpun í skólastarfi

Í Fab Lab Smiðjum fer fram bæði formlegt og óformlegt nám. Í smiðjunum eru kennd undirstöðuatriði stafrænnar framleiðslutækni á bæði grunnskóla- og framhaldsskólastigi. Mikil áhersla er lögð á að þjálfa kennara - sem síðan þjálfa nemendur sína í skapandi nýsköpunarveröld Fab Lab.

Skapandi vettvangur fyrir alla

Fab Lab Smiðjan stuðlar að því að veita öllum jöfn tækifæri til að framkvæma hugmyndir sínar og gera hugmyndir sínar að veruleika. Hægt er að finna fjölþætt námsefni á síðunni með einföldum og skilvirkum leiðbeiningum sem hver sem er getur farið eftir án nokkurra fyrrum kunnáttu.

Víðfeðmt Samstarfsnet

Fab Lab Smiðja Vesturlands er hluti af samstarfsvettvangnum Fab Lab Ísland. Helstu hlutverk samstarfsvettvangsins eru þekkingaryfirfærsla, fagleg þróun, samstarfsverkefni innanlands sem erlendis á sviði menntamála og þróunar.

Hvernig get ég byrjað?

Fab Lab er skapandi smiðja með tækjum og tólum svo hægt sé að gera nánast hvað sem er. Mættu í heimsókn til okkar og spjallaðu við okkur, það er ávallt fyrsta skrefið.

Í opnum tímum er alltaf starfsmaður á staðnum til að hjálpa þér með hvaða verkefni eða hugmyndir sem þig dettur í hug. Þeir sem eru yngri en 12 ára þurfa þó að koma í fylgd fullorðinna, en foreldrar mega líka mæta með börnin sín, sem geta oft flýtt töluvert fyrir tölvuvinnslunni.

Komdu í Fab Lab, þar sem hugmyndir þínar verða að veruleika!

Opnunartími

Allir Miðvikudagar

12:00 - 20:00

Staðsetning

Breið Nýsköpunarsetur

Bárugata 8-10, 300 Akranes

Dagatal Fab Lab Smiðju Vesturlands

Hafðu Samband

Ertu með einhverjar spurningar eða vangaveltur sem þig langar að fá svar við?
Sendu á okkur og við höfum samband við þig við fyrsta tækifæri!

Netfang
fablabvesturlands@gmail.com


Samfélagsmiðlar