Helsta auðlind

ýmindunaraflið er þín eina takmörkun

Um Fab Lab Smiðju Vesturlands

Fab Lab Smiðja Vesturlands er hluti af Fab Lab Ísland og var opnað í maí 2021. Fab Lab Vesturlands er samvinnuverkefni Akraneskaupstaðar, Menningar-, Nýsköpunar og Háskólaráðuneytis og Breið Þróunarfélags með stuðningi Mennta- og Barnamálaráðuneytis. Með verkefninu er stefnt að því að auka þekkingu og áhuga á verk- og tækninámi í grunn- og framhaldsskólum, auka almennt tæknilæsi, skapandi störf og frumkvöðlamennt með það að markmiði að styðja við nýsköpunarhugmyndir meðal almennings, innan menntastofnana og í atvinnulífinu.

Fab Lab Smiðja Vesturlands er staðsett á 2. hæð nýsköpunarsetursins Breið á Akranesi, Bárugata 8-10. Breið nýsköpunarsetur var áður fiskiðjuver en er í dag suðupottur frumkvöðla og nýsköpunar þar sem hugmyndir verða til. Nýsköpunarsetrið var stofnað af Breið þróunarfélagi sem hefur það að meginmarkmiði að byggja upp atvinnulíf og nýsköpun á Akranesi þar sem sjálfbærni, skapandi greinar og umhverfissjónarmið eru höfð að leiðarljósi.

Markmið og Stefna

Í Fab Lab smiðjum fer fram þjálfun á færni sem nýtist atvinnulífinu og skapar samkeppnishæfara samfélag. Fab Lab smiðjur eru mikilvægar menntakerfinu og efla áhuga og færni í raungreinum ásamt verk- og tæknigreinum. Í Fab Lab smiðjum fer fram fjölbreytilegt og skapandi nám Fab Lab smiðjurnar á Íslandi vinna náið saman að þekkingaruppbyggingu um allt land á sviði hönnunar, sköpunar og stafrænnar framleiðslutækni.

Notendur Fab Lab smiðjanna eru þjálfaðir upp fyrir störf framtíðarinnar sem krefjast meðal annars greiningarhæfni, seiglu, sveigjanleika ásamt skapandi, lausnarmiðaðar og gagnrýninnar hugsunar. Til að ná markmiðum okkar leggjum við áherslu á að efla nýsköpun í menntun, styðja við vöruþróun fyrirtækja og hlúa að nýjum hugmyndum hjá fólki á öllum stigum samfélagsins.

Skýr framtíðarsýn fyrir smiðjuna er lykilatriði í velgengni hennar og getur spilað lykilhlutverki í nýsköpunarkrafti á Vesturlandi. Mikilvægt sé að fólk á öllum aldri finnist þau vera velkomin í smiðjuna og að smiðjan sé ekki fyrir einungis ákveðinn hóp af samfélaginu. Með víðara sjónarhorni á tilgang og möguleika smiðjunnar er hægt að laða að þá hópa sem ekki hafa sýnt smiðjunni jafn mikinn áhuga hingað til. Hér eiga allir að vera velkomnir, hvort sem tilgangur þess er að nýta tækjabúnað, fá ráðgjöf frá starfsfólki, dunda sér við lagfæringar á heimilistækjum, eða þá bara til að setjast saman og fá sér kaffibolla yfir umræðum um lífið og tilveruna.

Fab Lab Ísland

Fab Lab Ísland er samstarfsvettvangur Fab Lab smiðja á Íslandi. Helstu hlutverk samstarfsvettvangsins eru þekkingaryfirfærsla, fagleg þróun, samstarfsverkefni innanlands sem erlendis á sviði menntamála og þróunar.

Hlutverkið er að styðja við og efla Fab Lab smiðjur á Íslandi til þess að stuðla að nýsköpun í atvinnulífinu og þróun menntaverkefna en einnig að stuðla að eflingu nærsamfélaga.

Stjórnendur og starfsfólk Fab Lab smiðja búa yfir fjölbreyttri og mismunandi þekkingu og reynslu og á hverju ári eru haldin svokallaðar Fab Lab Ísland Bootcamp vinnustofur. Þeim er ætlað að efla samstarf, miðla þekkingu og þróa nýjar hugmyndir. Þar deilir starfsfólk nýrri þekkingu og færni á fjölbreittum sviðum og þróar nýjar hugmyndir áfram. 

Starfsfólk

Jens Davíð Robertsson

Jens Davíð Robertsson tók við stöðu forstöðumanns Fab Lab Smiðja Vesturlands í byrjun febrúar 2024. Hann gegnir þeirri stöðu í 80% starfshlutfalli og séð um öll verkefni, skipulag, bókhald, og umsjón er við kemur smiðjunni.

Jens er með BSc í landslagsarkítektúr, auk þess að hafa starfað á sviði þrívíddamódelgerðar undanfarin ár.

Jóhannes Garðar Jóhannesson

Jóhannes Garðar Jóhannesson hefur unnið sem aðstoðarmaður í smiðjunni síðan í febrúar 2025.

Auk þess að vinna í smiðjunni hefur hann samhliða unnið hjá endurhæfingarhúsinu Hver og stuðlar að því að samtvinna starfssemi þessara tveggja stofnana enn frekar.