Þrívíddaprentarar

Þrívíddaprentarar eru tölvustýrðar vélar sem að allar hafa það sameiginlegt að búa til hlut úr plasti með því að prenta hann úr lag fyrir lag. Algengustu tegundirnar af þrívíddaprenturum eru svokallaðir FDM prentarar, en þeir bræða upprúllaðan plastþráð (filament) og byggja upp prentverkið eitt lag í einu. Auðveldast er að líkja FDM þrívíddaprenturum við tölvustýrða límbyssu þar sem að tækin notfæra sér sömu grundvallartækni og -hugsun. Algengasta efnið sem notað er í þrívíddaprenturum heitir PLA, sem er lyktarlítið og gefur engin eiturefni frá sér í prentferlinu. En aukalega eru til efni eins og PETG (höggþolnara), TPU (mjúkt efni sem gefur mjög vel eftir), og ASA (úti- og veðrunarþolið efni, mjög höggþolið).

Dæmi um þrívíddaprentaða kertastanda

Önnur algeng tegund eru SLA prentarar eða vökvaprentarar sem í stað þess að bræða plastþræði þá nota þeir prentvökva (resin) sem er hertur með UV ljósi til að búa til þrívíddahlutinn, eitt lag í einu. Í staðinn fyrir að nákvæmni prentverksins sé takmarkuð við þvermálið á stútnum, þá eru vökvaprentarar með innbyggðan LED skjá sem herða prentvökvann. Þessir skjáir geta verið með upplausn upp að 16k gæðum (flest sjónvörp ná mesta lagi 4k gæðum) og eru því resin prentverk miklu nákvæmari og fíngerðri en prentverk úr FDM prenturum.

Það þarf samt að gæta sérstakrar aðgát þegar höndlað er vökvaprentara og prentverk, en prentvökvinn er með sterkri lykt og það þarf að umgangast allt í kringum vökvaprentun með hlífðarbúnaði þar sem vökvinn er ertandi, þ.e.a.s. hlífðargleru, nitril hanskar, grímar, o.þ.h.

Þrátt fyrir þessa þætti vökvaprentunar þá er vökvaprentari mjög nytsamt tæki fyrir þá sem taka sér tímann í að læra á hann. Mikil nákvæmni prentarans gerir hann fullkominn til að prenta smágerð módel fyrir borðspil, styttur að hverskyns tagi, og aðra fíngerða hluti.

Notre Dame prentað í SLA prentara

Þegar kemur að möguleikum í þrívíddaprentun þá mætti lengi telja og er þetta það tæki sem að gefur án efa flestu möguleikana. Hinsvegar eru þrívíddaprentarar upp til hópa mjög hægvirkir og geta mjög stór prent stundum tekið upp að nokkrum dögum. Þetta ætti þó ekki að draga úr því að notað sé þrívíddarprentara þegar verkið kallar á það, heldur frekar að reyna að samnýta tækjabúnaðinn sem hér er til að gera ferlið sem skilvirkast og fljótlegast.

Fab Lab smiðjan býr yfir fjórum mismunandi þrívíddaprenturum í mismunandi stærðum og gerðum, þar af einn SLA prentara.

 
 

Bambu Lab P1S

Bambu Lab P1S er notendavænn og einfaldur prentari sem hver sem er getur lært á. Prentarinn getur prentað úr allt upp að 4 mismunandi litum í einu prentverki, auk þess að hann er í klefa sem gerir honum mögulegt að prenta úr flóknara efni eins og t.d. TPU eða PETG. Stærð prentflatar er 256 × 256 × 256 mm.

 

Bambu Lab X1C

Bambu Lab X1-Carbon deilir mörgum eiginleikum P1S, en aukalega við þá eiginleika þá er hann með innbyggða gervigreind sem fylgist með á meðan á prentinu stendur og metur ef að eitthvað hefur klikkað í prentinu, auk annarra eiginleika sem eykur líkurnar á að prentferlið heppnist.

 

Bambu Lab H2D

Bambu Lab H2D er einn af nýjustu prenturunum frá Bambu Lab og er með mun stærri prentflöt en hinir tveir prentararnir, eða 350 × 320 × 325 mm. Prentarinn er með tvo stúta sem auðveldar og flýtir fyrir litaskiptingu í prentverki, og stúturinn hitnar í upp að 350°C. Það gerir það að verkum að prentarinn hentar vel fyrir sterkbyggðari efni eins og ASA.

 

Anycubic Photon Mono M7 Pro

Anycubic Photon Mono M7 Pro er eini SLA prentari smiðjunnar. Hann er með prentflöt í stærðinni 223 × 126 × 230 mm og getur prentað allt upp að 170 mm/klst. Innbyggði LCD skjárinn er með 14K upplausn og getur prentarinn prentað allt niður í 0,05 mm lagaþykkt. Aukalega er hann með ýmsa eiginleika sem að eykur líkurnar á að prentverkið heppnist.

Athugið að SLA prentarar eru einungis meðhöndlaðir af starfsmönnum smiðjunnar. Þetta er gert í öryggisskini þar sem að vökvinn sem prentaður er úr getur verið ertandi ef hann er ekki rétt meðhöndlaður, en aukalega getur hann skemmt prentarann ef hann skildi leka á hann.

Previous
Previous

Geislaskeri