Algengar spurningar
Hvað er Fab Lab?
Fab Lab, eða fabrication laboratory, er stafræn skapandi smiðja sem býður hverjum sem er upp á aðgengi að stafrænum tækjum til að búa til næstum hvað sem er.
Hvaða tæki eru í Fab Lab?
Allar Fab Lab smiðjur deila sameiginlegum verkfærum og ferlum. Sumar Fab Lab smiðjur eru með öðruvísi vélar og en smiðjur innihalda venjulega: Geislaskera, 3d prentara, stafrænan fræsara, vínylskera, og safn af rafeindaíhlutum. Sjá tæki hér.
Hvað kostar að nota Fab Lab?
Aðgangur að Fab Lab smiðjum er ókeypis og öllum opinn. Hinsvegar rukkar smiðjan hógvært fyrir efnis- og búnaðarnotkun. Hægt er að sjá verðskrá smiðjunnar hér.
Hvenær má ég mæta?
Hægt er að mæta til okkar hvenær sem er á meðan við erum opin og ekki með skipulagðan hóp hjá okkur (sjá dagatal).
Ef þetta er í fyrsta skipti þá mælum við með því að mæta í opinn tíma á miðvikudögum frá 12:00 - 20:00.
ég veit ekkert…
Mun einhver aðstoða mig?
Þú þarft ekki að mæta með neitt nema hugmynd og vilja til að læra. Við aðstoðum þig í gegnum ferlið, hvort sem það er við undirbúning á tölvuteikningu eða í notkun á tækjabúnaði.
Hvað má ekki gera í fab lab?
Ekki er leyfilegt að búa til vopn þar með talið eftirhermur eða hlutir sem líkjast vopnum og/eða hluti sem geta verið hættulegir almenningi. Ekki er leyfilegt að búa til hluti sem brjóta á einkaleyfum.
Afhverju Fab Lab?
Fab Lab er staður til að leika, skapa, leiðbeina og finna upp: staður fyrir nám og nýsköpun. Fab Labs veita aðgang að umhverfinu, færni, efni og háþróaðri tækni til að leyfa hverjum sem er hvar sem er að búa til (næstum) hvað sem er.
Eru margar Fab Lab smiðjur á Íslandi?
Árið 2026 er fjöldi starfandi Fab Lab smiðja á landinu 13 talsins. En allsstaðar í heiminum eru smiðjurnar komnar yfir 2.900!
Hvað er það versta sem getur gerst?
Bara ein leið til að finna út úr því ;)

