Ársskýrsla 2024
Í þessari ársskýrslu eru teknar saman upplýsingar um starfssemi Fab Lab Smiðju Vesturlands á starfsárinu 2024. Hér verður fjallað um helstu verkefni, viðburði, og kynningar sem hafa átt sér stað innan smiðjunnar, mætingarskráning tekin saman auk þess sem farið verður yfir rekstrarstöðu smiðjunnar fyrir árið 2024. Einnig mun vera farið yfir hvernig smiðjan hefur byggt upp starfssemi sína síðasta ár og hvernig hún hefur náð að festa sig meira í sess í samfélaginu á Akranesi.
Starfssemin hjá Fab Lab Smiðju Vesturlands hefur tekið miklum stökkum á árinu sem var að líða og mikið hefur verið um breytingar. Fyrrum umsjónaraðilar hafa horfið frá og sér Akraneskaupstaður því alfarið um rekstur smiðjunnar núna. Í kjölfar þessara breytinga var Jens Robertsson ráðinn inn sem forstöðumaður smiðjunnar, en hann var upprunalega ráðinn inn sem tæknistjóri smiðjunnar í lok árs 2023.
Um sumarið var farið í miklar endurbætur á aðstöðunni og var smiðjan því tímabundið lokuð frá júní og að október. Á þeim tíma var aðstaða smiðjunnar stækkuð, skipulag aukið og rýmið gert notalegra og skilvirkara. Þessar endurbætur hafa skilað sínu og hefur smiðjan séð mikla aukningu í heimsóknartíðni og ný og bætt aðstaða hlotið mikið lof notenda.
Í lok ársins var gengið frá undirritun nýs samnings við Háskóla-, Iðnaðar- og Nýsköpunarráðuneytið og Barna- og Menntamálaráðuneytið við öll Fab Lab á Íslandi, en samningar höfðu verið lausir frá 1. janúar 2024. Nýr samningur tryggir áframhaldandi stuðning ráðuneytana við starfssemi smiðjanna og gildir frá undirritun til ársloka 2026.

