Ársskýrsla 2025
Yfir árið hefur Fab Lab Smiðja Vesturlands boðið upp á almenna opnunartíma, en á þessum opnunartímum gefst gestum og gangandi kostur á að nýta tækjabúnað og aðstöðu smiðjunnar án sérstaks gjalds. Mæting hélst frekar stöðug frá síðasta ári, en u.þ.b. 1.500 manns sóttu smiðjuna fyrri hluta árs. Rétt eins og á síðasta ári eru helstu notendur opna tímans aðilar frá endurhæfingarhúsinu Hver, en aukalega hefur haldist í ákveðinn „kjarnahóp“ frá síðasta ári sem reglulega mætir í opna tíma.
Árið 2025 byrjuðu meðlimir Feban að mæta reglulega í smiðjuna í gegnum skipulögð námskeið. Því miður drógst aðeins úr þeim eftir því sem leið á árið, en þess í staðinn hefur verkefnið Karlar í Skúrum tekið við frá því um haustið. Karlar í Skúrum er samfélagslegt verkefni þar sem að unnið er að útvega karlmönnum 18 ára og eldri aðstöðu til að skapa, föndra, og hittast.
Verkefnið hefur gengið vel síðan að ákveðið var að úthluta rými innan Fab Lab Smiðjunnar til þeirra, en dugnaðasamur og samheldinn hópur hittist reglulega á síðari hluta ársins til að setja upp aðstöðuna. Skúrinn, eins og hann er kallaður, opnaði síðan formlega þann 4. desember síðastliðinn og hefur aðsóknin einungis aukist síðan þá.

