Vínylskeri

Vínylskeri er tölvustýrður hnífur sem getur skorið í hversskyns filmur af öllum litum. Stundum er vínylskera líkt við prentara nema í stað þess að sprauta bleki þá er hníf stungið niður og allt sem hægt er að gera með dúkahníf í filmur er hægt að gera í vínylskera bara á mun nákvæmari og fljótlegri hátt.

Vínylskerinn er af mörgum talinn vera vanmetnasta tækið í Fab Lab smiðjunum, en hægt er þó að nota hann á fjölbreyttan hátt, t.d. til að:

  • Skera út límmiða til að festa á veggi, glugga, símahulstur, o.fl.

  • Skera út fatafilmur sem síðan er pressað ofan á boli, sængurver, strigpoka o.fl.

  • Skera út sveigjanlegar rafrásir

  • Skera út mynstur í yfirborð

  • Skera út filmur fyrir silkiprentun.

Vínylskeri er einfalt en öflugt tæki sem er fljótlegt að læra á og hentar því byrjendum mjög vel. Iðullega sker skerinn eftir vector teikningum sem hægt er að búa til í t.d. inkscape, en einnig er hægt að taka inn myndir sem að skerinn býr til línur fyrir og sker síðan út.

 
 

Roland GS2-24

Smiðjan er útbúin Roland GS2-24 vínylskera sem getur skorið allt að 600 mm breitt efni. Aukalega er hitapressa staðsett nálægt skeranum, en með honum er hægt að pressa nýútskornar fatafilmur á föt.

Previous
Previous

Vacuum Mótun

Next
Next

Geislaskeri