Vacuum Mótun

Í smiðjunni erum við með þægilega og einfalda græju (Mayku Formbox) sem getur búið til mót af nær hverju sem er. Hluturinn sem á að gera mót af er settur í vélina, ryksuga tengd við og eftir það er plast brætt fyrir ofan hlutinn. Þegar plastið er við rétt hitastig þá er því ýtt yfir hlutinn og síðan sér ryksugan um að soga plastið að hlutnum.

Hægt er að nota plast sem hentar fyrir steypu, gips, matvæli, o.fl. Það er því fjölmargt sem hægt er að gera með svona einfaldri græju, en eitt það helsta sem má minnast á er þ.á.m. sápur, súkkulaði, kerti, og gips verk.

Mayku Formbox

Previous
Previous

Stafræn Útsaumsvél

Next
Next

Vínylskeri