Geislaskeri
Geislaskeri er handhægt tæki sem er sífellt að verða vinsælla í framleiðsluiðnaði. Skerarnir beina sterkum ljósgeisla á einn lítinn punkt og ná þannig að skera (brenna) í gegnum efnið. Aukalega þá er geislaskerinn notaður til þess að brennimerkja í efni, svipað og hægt er að gera með brennipenna (rastera), nema miklu nákvæmara. Algengustu efni sem notuð eru í laserskeranum eru pappi, plexígler, gler, krossviður, leður og MDF. Hægt er þó að skera og rastera í fjölmörg efni, þ.á.m. málm.
Geislaskeri er fljótlegt tæki að læra á og fljótlegt er að vinna einfaldar skrár fyrir hann. En möguleikar þessa tækis geta verið óendanlegir ef að tekið er skref í þá átt. Nokkrar hugmyndir fyrir geislaskera eru t.d.:
Brennimerkja skurðarbretti, hitaplatta, o.fl.
Skera út skartgripi
Skera út glasamottur og aðra hluti í tvívídd.
Skera út nokkra parta sem síðan eru settir saman til að mynda þrívíddahlut.
GCC E200 Desktop Laser
E200 geislaskerinn er handhægur geislaskeri (eða laserskeri) sem nær að skera í gegnum allt að 6 mm þykku efni. Geislinn er mjög nákvæmur og getur þar með náð allt upp að 1000 DPI upplausn, þó það lengi vinnslutímann verulega.
Geislaskeranum er stjórnað í gegnum forritið SmartJob og tekur við öllum vector teikningum á .pdf skráarsniði.

