Stafræn Útsaumsvél
Stafræn útsaumavél virkar eins og hefðbundin saumavél nema það að hún er þeim kostum gædd að geta sjálfvirkt saumað myndir, texta, mynstur, o.þ.h.
Innbyggt í vélina eru tugi útsaumsmynstra og leturgerðir sem hægt er að sauma í allskyns efni, en einnig er hægt að búa til sitt eigið mynstur í forritinu Artspira sem saumavélin getur síðan lesið.
Vélin getur saumað í flest efni, en hugmyndir af efniviði eru t.d. föt, handklæði, tuskur, viskustykki, o.þ.h. Auk útsaumsvélarinnar er smiðjan einnig með tvær hefðbundnar saumavélar.
Brother F580
Brother F580 er útsaumsvél sem er auðveld í notkun og er stjórnað með þægilegum snertiskjá. Vélin býr yfir þ.á.m. 241 saumum, 10 hnappagötum, 193 útsaumsmynstrum, 5 stafafontum og 13 útsaumsfontum.
Stærð ramma eru 180 × 130 mm og 300 × 130 mm.

