Stafræn Fræsivél
Stafræn fræsivél, betur þekkt sem CnC fræsari, eru fjölþátta og flóknar vélar sem færa spindlu með áföstum bor um á 3 - 5 ásum og bora þannig í efnið. Hægt er að segja að stafrænn fræsari virki eiginlega öfugt við þrívíddaprentara. En í stað þess að hluturinn byggist upp lag fyrir lag á verkfletinum, þá sér fræsarinn um að skera hann út úr fyrirliggjandi efni lag fyrir lag.
Stafrænir fræsarar geta unnið að margkyns verkefnum úr fjölmörgum efniviðum. Hvort sem um er að ræða skilti, myndverk, landlíkön, styttur, eða hvað annað.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá hvernig stafræn fræsivél sér um að skera út skilti úr krossviðsplötu.
ShopBot Desktop
ShopBot Desktop fræsarinn er lítill en öflugur fræsari með 500 × 300 mm vinnuborði. Hann getur unnið allan hefðbundinn efnivið í fræsingu með mikilli nákvæmni og furðulegum hraða.
Athugið að starfsmaður smiðjunnar þarf ávallt að vera nálægt þegar notað er fræsarann. Tækið getur verið hættulegt ef það er meðhöndlað rangt og er viðeigandi hlífðarbúnaður nauðsynlegur!

