Fab Lab Bootcamp 550

Vikuna 26.- 29. maí hittust starfsmenn Fab Lab smiðja á Íslandi í vinnusmiðju á Sauðárkróki.

Er þetta árlegur viðburður og mikilvægur þáttur í endurmenntun, tengslaneti og almennu samstarfi smiðjana. Einnig fengum við góða gesti frá Finnlandi, þær Tinu og Tuuliu sem voru á vegum Erasmus+ í vettvangsferð, sem og fulltrúa frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu þau Lóu Auðunsdóttur og Óla Halldórsson. Þökkum við þeim kærlega fyrir áhugavert og gagnlegt spjall með bjartsýni að leiðarljósi.

Við fórum í heimsókn til Ísponica á Hofsós og þar fengum við að sjá og kynnast því frábæra starfi sem þar fer fram sem og samstarfi við Gró kaffihús. Haldin voru erindi, vinnusmiðjur og unnið að ýmsum verkefnum í smiðjuni. Viljum við sérstaklega þakka Birni Sighvatz og Jóni Pálmasyni fyrir þeirra framlag. Okkur til skemmtunar var svo farið í sund í Hofsós, Skotsvæði Ósmanns heimsótt og haldin var árshátíð starfsmanna á fimmtudagskvöldinu.

Fyrir þá sem vilja kynna sér nánar hvað fram fór í vikunni auk vinnusmiðja fyrri ára, þá er hægt að skoða heimasíðu Fab Lab Ísland Bootcamp.

 

Next
Next

Allt að gerast í skúrnum