Líf & fjör í smiðjunni

Það er búið að vera mikið líf og fjör í smiðjunni síðustu vikur. Hér hafa verið haldin sumarnámskeið fyrir krakka á aldrinum 10 - 13 ára í bæði laserskurði (22. - 25. júní) og þrívíddarprentun (15. - 19. júní) sem voru bæði mjög vel sótt og urðu bæði námskeiðin snemma fullbókuð. Verkefni krakkana voru mörg mismunandi en öll unnu þau að því að rækta hugmyndarflugið og sköpunarkraftinn með aðstoð stafrænnar tækni. Hægt er að sjá leiðbeiningarnar fyrir laserskera hér og leiðbeiningar fyrir þrívíddarprentun hér.

Fimmtudaginn 25. júní fengum við heimsókn frá aðilum úr tveimur fab lab smiðjum í Slóvakíu, KKC Hviezda og Fab Lab Tnuni, sem voru á ferð um Ísland til að kynnast einkennandi starfi Fab Lab smiðja á Íslandi.

Síðast en ekki síst voru tvö örnámskeið haldin fyrir 8. bekkinga í boði Akraneskaupstaðar sem haldin voru í boði Farsæls Frístundastarfs sveitarfélagsins. Á námskeiðunum fengust nemendur við að hanna sínar eigin lyklakippur sem voru síðan prentaðar út í þrívíddarprentara. Hægt er að sjá leiðbeiningarnar til að búa til ykkar eigin lyklakippu hér

Þökkum öllum sem hafa sótt smiðjuna fyrir áhugann og metnaðinn sem sýndur hefur verið!

Previous
Previous

Sumarlokun Fab Lab Smiðju Vesturlands 2026

Next
Next

Fab Lab Bootcamp 550