Allt að gerast í skúrnum
Skúrinn, sem er félagasamtök þar sem karlamenn 18 ára og eldri geta hist, rætt málin og unnið að fjölbreyttum verkefnum í góðum félagsskap. hefur sífellt verið að stækka og bæta við sig tækjum og búnaði. Fengu þeir núna að gjöf tvo rennibekki sem verða aðgengilegir félagsmönnum.
Það er ávallt jafn gaman að sjá hversu fjölbreytt og skapandi verkefni koma úr samveru þessara snillinga!

