Sumarnámskeið 2026
Nú er búið er að opna fyrir skráningu á sumarnámskeið Fab Lab Smiðju Vesturlands. Takmarkað pláss er í boði á hvort námskeið og geta hámark 10 skráð sig á námskeið. Hægt er að skrá sig með því að senda póst á netfangið fablabvesturlands@gmail.com eða með því að hafa samband í gegnum messenger.
Sumarnámskeið smiðjunnar hafa verið mjög vinsæl síðustu tvö ár og hafa ávallt færri komist að en sóttu um. Í ár verða námskeiðin tvö:
Fyrra námskeiðið kynnir helstu möguleika þrívíddarprentunar í skapandi og verklegri vinnu. Þar munu nemendur öðlast grunn færni í þrívíddarmódelgerð auk þess að fræðast um kosti og galla mismunandi þrívíddaprentunar.
Seinna námskeiðið fjallar um helstu möguleika geislaskera og hvernig má nota mismunandi eiginleika hans til að búa til hina ýmsu hluti úr timbri, plexígleri, og öðrum efnivið. Nemendur munu öðlast grunn færni í tvívíddarteikningu og nýta hana í hin ýmsu verkefni.
Námskeiðið er ætlað börnum á aldrinum 10 - 13 ára og eru alls 4 virkir dagar að lengd. Bæði námskeiðin kosta 19.900 kr og veittur er 20% systkina afsláttur.

