fata merkingar
Erfiðleikastig: ★☆☆☆☆
Með þessum leiðbeiningum er stefnt að því að búa til vínylskorinn límmiða sem hægt er að hitapressa á textíl af hvaða tagi. Leiðbeiningarnar eru partur af Skapandi Námssamfélag verkefninu sem unnið var í samvinnu með Fab Lab Reykjavík árið 2020. Meginmarkmið verkefnisins var að efla sköpunarfærni grunnskólanemenda Reykjavíkurborgar. Verkefnin geta því verið hagnýt öðrum skólum eða stofnunum sem eru að byggja upp stafrænar smiðjur sem og einstaklingum sem eru að taka sín fyrstu skref í skapandi starfrænu rými.
Notast er við Inkscape, frítt tvívíddar vektorforrit, til þess að hanna og teikna glasamottuna. Athugið að nauðsynlegt er að hlaða niður og setja upp forritið á tölvunni.

