Búið er að opna fyrir skráningu á sumarnámskeið Fab Lab Smiðju Vesturlands. Takmarkað pláss er í boði á hvort námskeið og geta hámark 10 skráð sig á námskeið. Hægt er að skrá sig með því að senda póst á netfangið fablabvesturlands@gmail.com
Nemendur munu læra á forrit sem notuð eru í tölvuteikningum og hvernig hægt er að nýta tækin til að búa til nánast hvað sem huginum dettur í hug. Námskeiðið er ætlað börnum á aldrinum 10 - 13 ára og eru alls 4 virkir dagar að lengd. Veittur er 20% systkina afsláttur.
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu möguleika þrívíddarprentunar í skapandi og verklegri vinnu. Nemendur munu öðlast grunn færni í þrívíddarmódelgerð auk þess að fræðast um kosti og galla mismunandi þrívíddaprentunar.
4 daga námskeið, kennt 4 klukkustundir í senn, verð: 19.900 krónur. Kennari námskeiðsins er Jens Davíð Robertsson
Fyrir allar fyrirspurnir má ávallt hafa samband á fablabvesturlands@gmail.com eða í gegnum samfélagsmiðla okkar.

