Tinkercad
Tinkercad er frítt vef forrit sem þjálfar grunn færni í 3D hönnun, rafeindatækni og kóðun.
að búa til Persónulegan aðgang á tinkercad
Opnaðu www.tinkercad.com
Smelltu á Búa til aðgang (Sign up).
Smelltu á Búa til persónulegan aðgang (Create a personal account).
Smelltu á Búa til aðgang með tölvupóstfangi (Sign up with email).
Næst þarft þú að skrá inn upplýsingar um land og fæðingardag. - ATH ef þú ert undir 13 ára þarft þú samþykki foreldra til að búa til aðgang með tölvupóstfangi.
Smelltu á Næsta síða (Next).
Skráðu tölvupóstfang og búðu til lykilorð.
Til þess að nota Tinkercad þarf þú að samþykkja skilmála.
Smelltu á Búa til aðgang (Create account).
Að búa til kennara og nemenda aðgang á tinkercad
Veldu Log in og ýttu á Educators.
Skráðu þig inn með aðganginum þínum.
Farðu í Classes (sem er ofarlega á síðunni)
Veldu Create new class til að búa til nýjan bekk.
Eftir að hafa skýrt bekkinn er hægt að ýta á Add Students. Hér seturðu nafn nemenda í Student og tinkercad sér síðan um að búa til login code fyrir aðganginn.Til að forðast persónuverndarbrot er gott að nota eingöngu gælunöfn í Student flipanum þegar búið er til nemenda aðgang.
Nemendur geta síðan skráð sig inn á viðeigandi nemenda aðgang með því að setja inn Login Code og Class Link (hægt að sjá efst til hægri).
Tinkercad Heimasvæðið
Hér sérð þú heima svæðið þitt, hér vistast öll skjölin sem þú gerir.
Vinstra megin fyrir miðju er hnappur sem heitir Kennslustundir (Classes), ef þú ert í hóp hjá kennaranum þínum finnur þú hann þar.
Í Þín skjöl (Your designs) geymast öll þín skjöl svo þú getur farið aftur í seinna og haldið áfram að vinna í þeim.
Ofarlega hægra megin er hnappur sem heitir Úrræði (Resources). Þar getur þú valið Lærdóms miðstöð (Learning Center) og þar eru alls konar æfingar til að æfa sig á en þær eru allar á ensku.
Tinkercad Vinnusvæðið
Þegar þú býrð til nýja hönnun opnast vinnusvæðið eins og sést hér að neðan:
Vinnusvæði
Valstika
Valborð
Vinnuflötur

